Handknattleiksárið 1957-58

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Handknattleiksárið 1957-58 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1957 og lauk sumarið 1958. KR-ingar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki í fyrsta og eina skipti og Ármannsstúlkur í kvennaflokki. Karlalandsliðið tók þátt í HM í Austur-Þýskalandi.

Karlaflokkur[breyta | breyta frumkóða]

1. deild[breyta | breyta frumkóða]

KR-ingar urðu Íslandsmeistarar á markatölu. Keppt var í níu liða deild með einfaldri umferð.

Félag Stig
KR 15
ÍR 15
FH 13
Fram 9
Ármann 9
Valur 6
Afturelding 3
Þróttur 2
Víkingur 2

Kvennaflokkur[breyta | breyta frumkóða]

1. deild[breyta | breyta frumkóða]

Ármenningar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna. Leikin var einföld umferð í fjögurra liða deild.

Félag Stig
Ármann 5
KR 4
Fram 2
Þróttur 1

Landslið[breyta | breyta frumkóða]

Íslenska karlalandsliðið í handknattleik lék sína fyrstu leiki frá árinu 1950 þegar það tók þátt í HM í Austur-Þýskalandi snemma árs 1958. Liðið lék enga æfingaleiki við aðrar þjóðir og lenti í erfiðum riðli. Það sigraði Rúmena en tapaði fyrir liðum Tékkóslóvakíu og Ungverjalands og komst ekki í milliriðil.

  • Tékkóslóvakía - Ísland 27:17
  • Ísland - Rúmenía 13:11
  • Ungverjaland - Ísland 19:16